
Vistmenning er þýðing á enska hugtakinu permaculture, sem á uppruna sinn í hugmyndafræði áströlsku náttúruunnendanna Bill Mollison og David Holmgren. Í stuttu máli felur hugtakið í sér aðferðir og hönnun sem gerir heimilum og samfélögum kleift að auka við sjálfsþurftarbúskap sinn, virða náttúrulegt umhverfi og leitast við að finna vistvænar lausnir til að bæta umhverfið til lengri tíma í stað þess að ganga sífellt á auðlindirnar.
Umhverfisvernd er sérlega mikilvæg á okkar tímum þar sem afleiðingar mannskepnunnar í garð jarðarinnar eru farnar að hafa alvarlegar afleiðingar. Í skýrslu frá loftlagsnefnd Sameinuðu þjóðanna sem birt var fyrir skemmstu kemur fram að gögn sem sýna áhrif hækkandi hitastigs eru tvöfalt fleiri nú en í síðustu skýrslu, sem birt var árið 2007. Þar segir jafnframt að með áframhaldandi hlýnun jarðar aukast líkurnar á harkalegum, útbreiddum og óafturkræfum áhrifum. En hitastig hefur nú þegar hækkað í öllum heimsálfum. Þetta er ógnvænleg þróun sem sporna þarf við og er vistmenning skref í þá átt.
Lífræn matjurtarræktun í heimagörðum
Vistmenning hefur líka verið kölluð vistræktun vegna þess að hugmyndafræði hennar nær yfir lífræna ræktun.En skipta má vistmenningu niður í þrjá megin þætti: Lífræna ræktun, hönnun híbýla og umhverfis ásamt félagslegri nálgun.
Hérlendis hefur matjurtarræktun sífellt færst í aukanna þar sem hringrás náttúrunnar er höfð í fyrirúmi í heimilishaldinu. Í því samhengi má nefna endurvinnslu á heimilissorpi þar sem lífrænn úrgangur er m.a. nýttur í jarðvegsgerð. Með hverju árinu má sjá meiri grósku í görðum landsmanna en aukinn áhugi á matjurtarræktun kom í kjölfar kreppunnar. Nú er bara spurning hvort fólk sé tilbúið að taka ræktunina skrefi lengra og tileinka sér hugmyndafræði vistræktunar.
Umhverfisskipulag og hönnun
Hugmyndafræði vistmenningar spannar vítt svið þegar kemur að skipulagi og hönnun. Arkitektar og aðrir sem vinna á því sviði eru orðnir miklu meðvitaðri um umhverfisvernd enda hafa kröfur samfélagsins aukist í þeim efnum. Í vistvænum byggingum er t.d. miðað við sparsama og skynsamlega orkunotkun. Byggingarefni skulu vera úr sem náttúrulegustum hráefnum og form bygginga sjálfra ættu að laga sig að landslaginu. Í skipulagi vistvænna byggðakjarna er gert ráð fyrir hjólreiðar- og göngustígum sem hvatningu til fólks að minnka notkun ökutækja. Við hönnun garða er gert ráð fyrir að matjurtir séu notaðar bæði til skrauts og skjóls. Plöntum er komið haganlega fyrir til að ná hámarksuppskeru með sem minnstri vinnu. Tré draga úr hávaða og rykmengun og eru valin með tilliti til vindátta, vaxtarhraða og nytja því um leið og skjól myndast í görðum hækkar hitastigið og öll ræktun verður auðveldari. Ekki spillir að geta komið fyrir tjörn hvort sem er í heimilis- eða almenningsgarði því þær tempra hitasveiflur og gróðurskálar lengja ræktunartímann. Hænur í heimilisgörðum bæta líka vistkerfið því þær skaffa áburð, halda meindýrum í skefjum og minnka heimilssorp með því að borða matarafganga. Hönnunin gegnir því margþættu hlutverki til að viðhalda sjálfbærni á staðnum.
Félagsleg samábyrgð og fræðsla
Vistmenning stuðlar að því að fræða íbúa um umhverfismál svo að sem flestir verði meðvitaðir og geti þannig haft jákvæð áhrif á nánasta umhverfi sitt. Nútímaheimili eru yfirleitt hvíldarstaður útivinnandi fólks, því gætu sumir spurt sig hvort vistmenning sé ekki öfgakennd og afturhvarf til fortíðar? Þá er hægt að spyrja viðkomanda hvaða aðrar leiðir hann sjái fyrir sér til að sporna gegn hlýnun jarðar, súrari höfum, uppskerubresti, flóðum osfrv. En flestir eru farnir að skilja ábyrgð sína í umhverfisvernd og ganga til daglegra verka með hagsmuni móður jarðar að leiðarljósi, allt eftir því sem þeir treysta sér til.
Fyrsta námskeiðið hérlendis í vistmenningu var haldið fyrir tæpum 20 árum á Sólheimum í Grímsnesi og eru Sólheimar gott dæmi um lítið samfélag þar sem gildi vistmenningar er haldið á lofti. Þess má geta að næsta námskeið hérlendis í þessum fræðum verður haldið í júní nk. á Alviðru í Ölfusi sjá nánar HÉR
Aldingarður í Flórída
Til gamans læt ég fylgja með vídeó sem ég fann á youtube en þar segir frá hjónum sem hafa breytt garðinum sínum í Flórída í sannkallaðan aldingarð og byggja þau vitneskju sína á fræðum vistmenningar.
Heimildir:
http://www.nlfi.is/vistraekt-fyrir-alla
https://www.facebook.com/natturan.is?fref=ts
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/428488/
http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/03/31/sameinudu-thjodirnar-loftslagsbreytingar-ogna-milljordum-manna/