Quantcast
Channel: Heilsan – Hun.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1210

Skemmtilegar staðreyndir um líkamann sem þú getur deilt með börnunum

$
0
0
Photo by Clare Bloomfield
Það er gaman að fræða börnin okkar um líkamann og í þessari grein eru skemmtilegar staðreyndir sem að börn ættu að hafa gaman af.

-  Heilinn notar um ¼ af því súrefni sem líkaminn notar.

-  Hjartað slær um 100.000 sinnum á dag, 36.500.000 sinnum á ári og yfir billjón sinnum ef þú lifir fram yfir þrítugt.

-  Rauðu blóðkornin bera súrefnið um líkamann. Þau eru búin til inn í beinmergnum í beinunum okkar.

-  Liturinn á húðinni okkar er ákveðinn af því hversu mikið litarefnið melanin líkaminn framleiðir.

-  Lungun í fullorðinni manneskju hafa yfirborðsstærð á við 70 fermetra íbúð.

-  Svefninn hefur stig sem kallað er REM svefn. REM svefn er um 25% af okkar svefntíma og þegar við náum honum að þá eru draumar okkar mjög raunverulegir.

-  Flestir fullorðnir einstaklingar hafa 32 tennur.

-  Minnsta beinið í líkamanum er í eyranu.

-  Nef og eyru hætta aldrei að vaxa.

-  Ungabörn blikka augunum ekki nema einu sinni til tvisvar á mínútu á meðan fullorðnir blikka augunum um 10 sinnum.

-  Við erum öll með okkar eigin fingraför, það eru engin fingraför eins. Við höfum líka einstakt tungufar.

-  Vinstri hliðin af líkamanum er stjórnað af hægri helmingi heilans og öfugt.

-  Sýklalyf eru aðeins virk á bakteríur, sýklalyf virka ekki á vírusa.

-  Það tekur líkamann um 12 klukkutíma að melta máltíð til fulls.

-  Lyktarskynið er um 10.000 meira næmra en bragðskynið.

 

Þýðing: Anna Birgis – Heilsutorg.is

heilsutorg neðst

Heimildir: sciencekids.co.nz


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1210